Peningastefnunefnd samþykkti á fundi sínum í gær umtalsverðar breytingar á stjórntækjum peningastefnunnar. Fjallað hefur verið um breytingarnar á undanförnum fundum nefndarinnar.

Markmið fyrirhugaðra breytinga er að auka virkni lausafjárstýringar bankans og stuðla eftir því sem mögulegt er að meiri hagkvæmni út frá efnahag hans. Þá eiga þær að búa í haginn fyrir þær breytingar sem munu verða á umhverfi peningastefnunnar við fyrirhugaða eignasölu Eignarhaldsfélags Seðlabanka Íslands (ESÍ) og losun fjármagnshafta.

Breytingarnar eru eftirfarandi:

  • Vikulegum útboðum 28 daga innstæðubréfa verður hætt, en fjármálafyrirtækjum í viðskiptum við Seðlabanka Íslands þess í stað boðin tvenns konar bundin innlán sem verða veðhæf í viðskiptum við Seðlabanka Íslands.
  • Meginregla í viðskiptum Seðlabankans verður að ekki er boðið upp á innlán og útlán á sama tíma.
  • Seðlabankinn mun eftirleiðis setja fjárhæðarmörk á veðlán eða bundin innlán sem bjóðast hverju sinni.
  • Vikulega verða boðin bundin innlán til viku í senn sem bera fasta vexti.
  • Fyrsta viðskiptadag reglulegra viðskipta hvers mánaðar verða boðin í útboði bundin innlán til mánaðar í senn. Fjármálafyrirtæki munu bjóða bæði fjárhæð og vexti í því útboði. Útboðinu verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð munu bjóðast á hæstu vöxtum samþykktra tilboða. Fyrsta útboð verður haldið 4. júní næstkomandi.