Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,11% í 13,9 milljarða króna viðskiptum í dag. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,17% á meðan sá óverðtryggði hækkaði um 0,01%.

Úrvalsvísitala Kauphallarinnar hækkaði um 1,81% í 367 milljóna króna viðskiptum í dag. Gengi bréfa Össurar hækkaði um 2,59%, Icelandair um 2,01% og Marels um 1,93%. Hins vegar lækkaði gengi bréfa BankNordik um 2,47%.