Una Jónsdóttir hagfræðingur hefur verið ráðin til að stýra deild leigumarkaðsmála hjá Íbúðalánasjóði. Una starfaði áður sem hagfræðingur í hagdeild sjóðsins og hafði þar meðal annars með höndum greiningar á stöðu leigjenda og ástandi leigumarkaðarins.

Deild leigumarkaðsmála styður við það markmið Íbúðalánasjóðs að stuðla að því að landsmenn búi við öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum en á Húsnæðisþingi sem fram fór í október sl. kom skýrt fram að hluti leigjenda býr við kröpp kjör og lítið húsnæðisöryggi.

Einungis 14% leigjenda vilja vera á leigumarkaði

Eitt helsta verkefni deildar leigumarkaðsmála er að vinna að því að gera leigumarkaðinn að raunverulegum valkosti fyrir fólk. Kannanir sem Íbúðalánasjóður gerði í fyrra sýndu að einungis 14% leigjenda eru á leigumarkaði vegna þess að þeir vilja vera þar.

Deildin safnar og vinnur úr upplýsingum um leigumarkaðinn en talið er að aukinn áreiðanleiki gagna og bætt upplýsingamiðlun um leigumarkaðinn sé eitt af því sem þurfi til þess að gera hann að raunverulegum valkosti.

Skortur á leiguhúsnæði kemur verst niður á jaðarhópum

Tölur frá Reykjavíkurborg sýna að fjöldi utangarðsfólks hefur aukist um 95% frá árinu 2012 og má það að miklu leyti rekja til skorts á leiguhúsnæði og kemur það einmitt verst niður á jaðarhópum sem hafa hingað til aðallega verið á höndum sveitarfélagana.

Íbúðalánasjóður telur að skoða þurfi hvort  aukinn stuðningur þurfi að koma til, til þess að sinna öllu því fólki sem þarf á húsnæði að halda.

Segir markaðinn ekki fengið næga athygli

Una Jónsdóttir segist spennt fyrir því að takast á við þetta stóra verkefni. „Leigumarkaðurinn hefur ekki alltaf fengið næga athygli, meðal annars af því að áreiðanleg gögn og greiningar um markaðinn hefur skort. Einnig hefur þótt hálfgert neyðarúrræði að vera á leigumarkaði og áhugi á honum þannig kannski ekki mikill“ segir Una.

Við ætlum að reyna snúa þeirri þróun við. Það verður alltaf hlutfall þjóðarinnar sem þarf að treysta á öruggan leigumarkað og því er mikilvægt að hann sé til staðar. Deild leigumarkaðsmála greinir markaðinn og þarfir þeirra sem þar eru og kemur með tillögur að úrbótum.

Í gegnum tíðina hefur margt áunnist varðandi stöðu leigjenda en betur má ef duga skal. Það þarf að þroska leigumarkaðinn og hlusta á þarfir allra aðila sem þar eru, og er það einn helsti tilgangur starfs leigumarkaðsdeildarinnar.“