Una Jónsdóttir hefur verið ráðin í starf forstöðumanns Hagfræðideildar Landsbankans. Una hefur starfað í Hagfræðideild bankans frá árinu 2019 og tekur nú við stjórnartaumunum af Daníel Svavarssyni sem sagði upp störfum í síðasta mánuði eftir yfir áratug í starfi.

Una hefur meðal annars borið ábyrgð á greiningum og spám um þróun fasteignamarkaðar og einkaneyslu hjá Hagfræðideildinni, og starfaði áður hjá Íbúðalánasjóði sem deildarstjóri Leigumarkaðsdeildar og í Hagdeild Alþýðusambands Íslands.

Una er með M.Sc. gráðu í hagfræði og stjórnun frá Humboldt-háskóla í Berlín og B.S. gráðu frá Háskóla Íslands. Una hefur þegar tekið við starfinu og þar með hlutverki aðalhagfræðings Landsbankans.