Seðlabanki Íslands telur nú forsendur til að veita undanþágur frá lögum vegna afleiðuviðskipta til varanlegra áhættuvarna. þetta kemur fram í tilkynningu frá Seðlabanka Íslands.
Breyting þessi á framkvæmd markar áfanga í átt að fullri losun fjármagnshafta. Nánar tiltekið er um að ræða undanþágur sem geta dregið úr gjaldeyrisáhættu tengdri beinni fjárfestingu innlendra aðila erlendis og erlendra aðila á Íslandi.
Fyrirtækjum verður jafnframt gert kleift að leiðrétta gjaldeyrisójöfnuð á efnahagsreikningi sínum. Markmið breytinganna er að meta nauðsyn og vilja fyrirtækja til áhættuvarna á næstu misserum og undirbúa fulla losun fjármagnshafta.
Undanþágur þessar eru sömuleiðis til þess fallnar að draga úr áhættu fyrirtækja í rekstri og hafa jákvæð áhrif á kjör og lánshæfi þeirra.
Undanþágur vegna afleiðuviðskipta til spákaupmennsku verða þó ekki leyfðar að sinni.