Formlegur stofnfundur Miðflokksfélags Reykjavíkur fór fram í Rúgbrauðsgerðinni í gærkvöld, 22. janúar, en gestir fundarins voru þeir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins og Þorsteinn Sæmundsson þingmaður Reykjavíkurkjördæmis Suður. Nýstofnað Miðflokksfélag Reykjavíkur mun m.a. standa fyrir öflugu félagsstarfi og hafa umsjón með undirbúningi framboðs Miðflokksins til borgarstjórnar í Reykjavík fyrir kosningarnar vorið 2018.

Miðflokksfélag Reykjavíkur er þriðja nýstofnaða kjördæmafélag Miðflokksins, en félagið mun starfa fyrir bæði Reykjavíkurkjördæmin. Félagið hefur skv. nýsamþykktum lögum þess þann tilgang að vinna að bættum hag íbúa Reykjavíkur og gæta hagsmuna þeirra á vettvangi lands- og sveitarstjórnarmála.

Í stjórn Miðflokksfélags Reykjavíkur voru kosin þau Reynir Þór Guðmundsson formaður, Valgerður Sveinsdóttir, Steinunn Anna Baldvinsdóttir, Sigurjón Jónsson og Kristján Hall.  Varastjórn skipa Viðar Freyr Guðmundsson, Kristín Jóna Grétarsdóttir og Sólveig Daníelsdóttir.

Félagið óskar því eftir framboðum frá áhugasömum einstaklingum sem vilja láta til sín taka í borgarmálunum. Áhugasömum er bent á að hafa samband við Miðflokksfélag Reykjavíkur á tölvupósti [email protected] eða í síma 863-4000.