Hanna Birna Kristjánsdóttir innanríkisráðherra hefur skipað nefnd sem hefur það hlutverk að undirbúa millidómstig.  Meðal markmiða í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er að tekið verði upp millidómstig bæði í einkamálum og sakamálum og að Hæstiréttur starfi í einni deild.

Í tilkynningu frá innanríkisráðuneytinu segir að með skipun nefndarinnar sé ráðherra að hrinda þessu verkefni af stað og muni nefndin útfæra  fyrirkomulag, tímamörk, kostnað og önnur atriði sem  snerta tilurð millidómstigs. Einnig skal í frumvarpinu fjallað um starfsemi og fyrirkomulag sameiginlegrar stjórnsýslu dómstóla landsins, eftirlit dómskerfisins með dómurum og starfsemi dómstóla. Stefnt er að því að leggja megi frumvarp fyrir Alþingi í mars á næsta ári.

Formaður nefndarinnar er Kristín Edwald hæstaréttarlögmaður og aðrir nefndarmenn eru Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við HÍ, og Hervör Þorvaldsdóttir héraðsdómari.