Undirbúningsframkvæmdir fyrir álver Norðuráls í Helguvík hófust í dag. Í fyrstu verður lagður vegur að lóðinni, öryggisgirðing reist og sett upp verkefnisskrifstofa á staðnum.  Áformað er að taka fyrstu skóflustungu að kerskála innan tíðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurál.

Líkt og álver Norðuráls á Grundartanga veður álverið í Helguvík byggt í áföngum þannig að fyrirtækið vaxi hóflegum skrefum fyrir íslenskt hagkerfi, segir í tilkynningunni.

Áætlað er að fyrsta áfanga framkvæmda verði lokið árið 2010 og að framleiðslugeta álversins verði þá um 150.000 tonn á ári. Öðrum áfanga á að verða lokið árið 2015 og verður framleiðslugetan þá komin í 250.000 tonn. Áformað er að hefja álframleiðslu í Helguvík síðla árs 2010.