Nýlega kaus Alþingi sjö manna nefnd sem á að undirbúa hátíðarhöld í tilefni 100 ára afmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands 2018 eins og það er orðað í ályktun Alþingis.

Formaður nefndarinnar verður Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi forseti Alþingis, en fjárveiting til verkefnisins nemur 200 milljónum króna.

Halda á í tilefni afmælisins hátíðarfund bæði um sumar á Þingvöllum og svo 1. des þegar fullveldið tók gildi.

Jafnframt á að taka saman rit um aðdraganda þess auk þess að leggja áherslu á sögulega arfleifð þessara atburða í skólum sem og íslensku handritanna og mikilvægis íslensks máls og uppbyggingar máltækni fyrir það.

„Alþingi ályktar, í tilefni þess að árið 2018 er öld liðin frá því er íslenskt ríki, sjálfstætt, frjálst og fullvalda, var á ný stofnað með sambandslögunum 1918,“ segir í byrjun ályktunarinnar sem listar helstu verkefni nefndarinnar.

„-halda hátíðarfund á Þingvöllum 18. júlí 2018 en þann dag fyrir einni öld var samningum um fullveldi Íslands lokið

-fela ríkisstjórninni að efna til hátíðahalda 1. desember 2018 þegar öld verður liðin frá því að sambandslögin öðluðust gildi; jafnframt efni ríkisstjórnin af því tilefni til samkeppni um hönnun og útlit Stjórnarráðsbyggingar og skipulags á Stjórnarráðsreit;

-fela undirbúningsnefnd að:

1.      láta taka saman rit um aðdraganda sambandslaganna, efni laganna og framkvæmd þeirra, svo og rit um inntak        fullveldisréttar er Ísland öðlaðist að þjóðarétti árið 1918;

2.      stofna til sýningar í samvinnu við Árnastofnun á helstu handritum safnsins til að minna á grundvöll íslenskrar menningar og forsendur sjálfstæðis og fullveldis þjóðar­innar;

3.      stuðla að heildarútgáfu Íslendingasagna á afmælisárinu svo að fornar bókmenntir Íslendinga séu jafnan öllum tiltækar, jafnt á bók sem stafrænu formi;

4.      hvetja skóla til að beina sjónum að þeim merku tímamótum sem urðu í íslensku samfélagi með sambandslögunum árið 1918.

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að sjá til þess að í fjármálaáætlun til næstu fimm ára, sem lögð verður fyrir Alþingi vorið 2017, verði gert ráð fyrir uppbyggingu Náttúruminjasafns.

Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að undirbúa ályktunartillögu um uppbyggingu inviða fyrir máltækni fyrir íslenska tungu og fimm ára áætlun um það efni.“

Alþingi ályktar að fela Þingvallanefnd að ljúka stefnumörkun fyrir framtíðaruppbyggingu þjóðgarðsins á Þingvöllum og efna til sýningar um sögu Þingvalla og náttúrufar.“