Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. hefur undirritað samning við Sparra ehf. um byggingu vörugeymslu fyrir Fríhafnarverslun félagsins. Um er að ræða stálgrindarbyggingu sem verður um 1.450 fermetrar að grunnfleti og verður hún staðsett á flugþjónustusvæði við flugskýli Icelandair á Keflavíkurflugvelli. Nýja vörugeymslan verður því innan frísvæðis sem auðveldar alla vörumeðhöndlun.

Framkvæmdir eru þegar hafnar og eru áætluð verklok 1. janúar 2005.