„Sveitarfélögin Reykjanesbær, Sandgerði, Vogar og Garður og Fluglestin-þróunarfélag hafa undirritað samstarfssamning um skipulagsmál vegna hraðlestar milli Keflavíkurflugvallar og höfuðborgarsvæðisins“, segir í tilkynningu frá Fluglestinni-þróunarfélagi.

Stefnt er að því að styrkja bæði byggð á Suðurnesjum og tryggja hagkvæmni framkvæmdarinnar. Samfélagsleg áhrif framkvæmdarinnar verður greind með sérstöku tilliti til fasteignaveðs, launaþróunar og atvinnulífs.

Verkefninu er stýrt stýrt af hópi sem skipaður er af fulltrúum frá sveitarfélögum og þróunarfélaginu.

Skipulagi þarf að breyta til þess að það sé hægt að koma fyrir lestarlínu, lestarstöðvum og viðhaldsaðstöðu. Þar þyrftu sveitarfélögin að stíga inn og veita vilyrði fyrir lóðum í deiliskipulagi. Einnig munu sveitarfélögin tryggja nauðsynlegt samstarf við framkvæmd og gerð mats á umhverfisáhrifum.

Samningurinn gildir til fimm ára.