Charles Hendry, orkumálaráðherra Bretlands kemur til Íslands á morgun. Klukkan 16.20 mun hann ásamt Oddnýju G Harðardóttur, iðnaðarráðherra undirrita sameiginlega viljayfirlýsingu landanna varðandi orkumál, að því er segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Í viljayfirlýsingunni kemur m.a. fram vilji þjóðanna til að styrkja vináttutengsl sín og er lögð áhersla á mikilvægi endurnýjanlegra orkugjafa og samvinnu í þróun jarðhitanýtingar í Bretlandi við uppbyggingu hitaveitu. Einnig er sameiginlegur áhugi á jarðvarma í þróunarlöndum með áherslu á verkefni í Austur Afriku.

Á fimmtudagsmorgun mun breski ráðherrann m.a. flytja ávarp á ráðstefnu sem haldin er í Arionbanka og verður þar m.a. fjallað um breytt umhverfi á evrópskum orkumarkaði og þau tækifæri sem í því felast fyrir íslensk fyrirtæki.