Vilhjálmur Bjarnason, fráfarandi framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, hefur ekki gefið haldbærar skýringar á þeim fullyrðingum að Ungir fjárfestar hafi reynt að „hirða Samtök fjárfesta.“ Þetta er á meðal þess sem fram kemur í yfirlýsingu frá Ungum fjárfestum. Fyrir páska sagði Vilhjálmur í samtali við Morgunblaðið að hópur nemenda við Háskólann í Reykjavík sem höfðu áður stofnað samtök ungra fjárfesta hafi sótt um aðild að Samtökum fjárfesta. Vilhjálmur sagði að staldrað hafi verið við umsóknirnar. Fjárfestarnir ungu hafi aldrei látið sjá sig á fundum en ætli að koma á aðalfund og hirða félagið. Vilhjálmur segir ástæðuna þá að félagið eigi dálítinn aur, 15 milljónir króna.

„Þegar heil samtök ganga í önnur er staldrað við. Okkur ber að vernda hagsmuni samtakanna,“ sagði Vilhjálmur í samtali við blaðið.

Hafa ekki gert atlögu að Samtökum fjárfesta

Í yfirlýsingu Ungra fjárfesta segir að þau hafi aldrei gert atlögu að Samtökum fjárfesta. Formaður ungra fjárfesta, Einar Smárason, sem skrifaður er fyrir yfirlýsingu samtakanna, segir þau engu að síður geta haft hag af því að starfa saman.

„Hugmyndin að baki stofnun Ungra fjárfesta var m.a. að efla þekkingu ungs fólks um fjárfestingar og er því ljóst að tilgangur félaganna tveggja er svipaður, þar sem segir á heimasíðu Samtaka fjárfesta að félagið hefur „þann tilgang að gæta hagsmuna fjárfesta gagnvart stjórnvöldum, stjórnmálamönnum, útgefendum hlutabréfa og annarra verðbréfa og fjölmiðlum og öðrum þeim sem áhrif geta haft á hag fjárfesta. Auk þess er samtökunum ætlað að efla áhuga og þekkingu á fjárfestingaleiðum og almennum sparnaði,“ segir í yfirlýsingunni.

Yfirlýsing Ungra fjárfesta í heild sinni:

„Ungir fjárfestar hafa aldrei reynt að gera atlögu að Samtökum fjárfesta og skilur stjórn félagsins ekki hvaðan slíkar ásakanir koma. Eftir að grein Vilhjálms birtist í Morgunblaðinu höfðum við samband við hann og óskuðum eftir frekari skýringum á þessum ásökunum en þá gat hann ekki gefið neinar haldbærar skýringar fyrir þeim, aðrar en þær að það hefðu ungir aðilar sem mögulega væru félagsmenn hjá Ungum fjárfestum sótt um að gerast félagsmenn í Samtökum fjárfesta.

Telur stjórn Ungra fjárfesta ljóst að félögin hafa ýmis sameiginleg markmið og það hljóti að vera félagsmönnum beggja félaga til hagsbóta að þau starfi saman. Vegna þess hve eðlislík félögin eru, sé einnig ljóst að félagsmenn geti kosið að vera í báðum félögum, einfaldlega vegna áhuga á fjárfestingum og hagsmunum sparifjáreigenda. Þá hefur stjórn Ungra fjárfesta verið í sambandi við Vilhjálm vegna hugmynda um samstarf félaganna, en slíkar viðræður voru einungis komnar stutt á veg, því koma ásakanir Vilhjálms stjórninni í opna skjöldu.

Hugmyndin að baki stofnun Ungra fjárfesta var m.a. að efla þekkingu ungs fólks um fjárfestingar og er því ljóst að tilgangur félaganna tveggja er svipaður, þar sem segir á heimasíðu Samtaka fjárfesta að félagið hefur „þann tilgang að gæta hagsmuna fjárfesta gagnvart stjórnvöldum, stjórnmálamönnum, útgefendum hlutabréfa og annarra verðbréfa og fjölmiðlum og öðrum þeim sem áhrif geta haft á hag fjárfesta. Auk þess er samtökunum ætlað að efla áhuga og þekkingu á fjárfestingaleiðum og almennum sparnaði.“

Óskar stjórn Ungra fjárfesta því enn og aftur eftir samstarfi við Samtök fjárfesta (eða Samtök sparifjáreigenda) og vonar að samstarfið verið farsællegt.

F.h. Ungra fjárfesta,

Einar Smárason, formaður“