Hagnaður mótorhjólaframleiðandans Harley-Davidson jókst um 29,7% á síðasta ársfjórðungi. Sérstök markaðsherferð var sett af stað sem átti að höfða til unga fólksins sem skilaði sér vel í sölutölum. Þetta kemur fram á vef FOX business.

Hagnaður var 247,3 milljónir dala eða 1,07 dollari á hlut. Á sama tíma í fyrra var hagnaður 190,6 milljónir dala. Tekjur fyrirtækisins jukust um 14,6% og standast þessar tölur því væntingar.