„Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna hvetur til þess að nú þegar verði hafið samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um að taka upp Bandaríkjadal í viðskiptum á Íslandi. Ungir sjálfstæðismenn telja því miður einsýnt að tilraunir til þess að halda íslensku krónunni séu líklegar til þess að mistakast með miklum tilkostnaði fyrir íslenskt efnahagslíf.“

Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn SUS samþykkti í gærkvöldi en þar er hvatt til þess að íslensk stjórnvöld gangi tafarlaust til viðræðna við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um upptöku Bandaríkjadals sem lögeyris á Íslandi.

„Nýsamþykkt gjaldeyrishöft, sem meðal annars banna útflytjendum að kaupa krónur í erlendum bönkum til heimflutnings, undirstrika hversu vonlaus staðan er,“ segir í ályktuninni.

„Á meðan gengi gjaldmiðilsins fær ekki að ráðast á markaði munu stjórnvöld þurfa að grípa til sífellt harðari aðgerða til þess að verja gervigengið í Seðlabankanum. Þær aðgerðir fela annars vegar í sér höft og hins vegar fjárútlát.“

Stjórn SUS segir að í ljósi fyrri reynslu Íslands sem og annarra þjóða af gjaldeyrishöftum hefðu  stjórnmálamenn geta sagt sjálfum sér að óumflýjanleg afleiðing þeirra er myndun tvöfalds gengis.

„Gengi íslensku krónunnar á Íslandi er of hátt skrifað, og erlendis er gengi hennar of lágt,“ segir í ályktuninni.

„Seðlabankinn niðurgreiðir þannig krónuna á íslenskum markaði. Mismunurinn sem myndast milli þessara tveggja, fölsku gengisskráninga er sóun.“

Þá skora ungir sjálfstæðismenn á stjórnmálamenn allra flokka að láta lokið baráttu við vindmyllur.

„Annað hvort þarf að gefa viðskipti með krónuna frjáls og taka þeim afleiðingum sem það hefur í för með sér, eða að taka upp annan gjaldmiðil sem nýtur trausts í alþjóðlegum viðskiptum,“ segir í ályktuninni.

„Sú leið að taka upp annan gjaldmiðil er líklegri til árangurs heldur en áframhaldandi og síaukin höft í viðskiptum og stórkostleg fjárútlát Seðlabankans og ríkissjóðs.”