Ungt fólk er líklegt til að gegna lykilhlutverki í bata fasteignamarkaðarins. Þetta eru ekki fólkið sem brenndi sig á hruninu heldur þeir stóru og lítið skuldsettu árgangar sem munu koma inn á fasteignamarkaðinn á komandi árum, að mati Hafsteins Haukssonar, sérfræðings hjá greiningardeild Arion banka.

Hafsteinn skrifaði grein um fasteignamarkaðinn í Áramótum, tímariti Viðskiptablaðsins, sem kom út á milli jóla og nýárs. Þar líkir hann fasteignamarkaðnum við sjúkling í bataferli. Hann bendir á að á árunum 2004 til 2008 hafi fasteignamarkaðurinn smitast þegar bóla myndaðist í hagkerfinu. Á árunum 2008 til 2009 hafi hann svo lagst undir hnífinn þegar sársaukafull leiðrétting fasteignaverðs hafi átti sér stað. Í kjölfarið lá hann á gjörgæslu þegar fá viðskipti áttu sér stað og markaðurinn var botnfrosinn. Þá líkir hann ástandinu á árunum 2010 til 2011 þegar niðurfelling skulda komu til, þau færð niður um 50 milljarða. Fasteignaverð náði svo botni þegar markaðurinn lá á legudeildinni.

Hafsteinn segir fasteignamarkaðinn hafa útskrifast af sjúkrahúsi í fyrra og sé hann að verða fullfrískur í meðferð á göngudeild. Batinn er hægur og hljóður, að hans sögn.

„Vonir standa til að hann muni bjóða upp verðið á minni fasteignum eftir því sem efnahagsbatanum vindur fram og kaupmáttur eykst, og losa þar með um eiginfjárgildruna sem margir eru fastir í,“ skrifar Hafsteinn.

Grein Hafsteins Haukssonar .