Stjórn United Silicon hf. hefur sent beiðni til Héraðsdóms Reykjaness um gjaldþrotaskipti á búi félagsins að því er kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu. Útséð þótti að nauðasamningar myndu ekki nást og því ekki forsendur fyrir beiðni um frekari framlengingu á greiðslustöðvun.

Í tilkynningunni segir einnig að ákvörðunin hafi verið tekin eftir að ljóst varð að Umhverfisstofnun gerði kröfu um rekstur hæfist ekki á ný í verksmiðjunni fyrr en eftir viðamiklar framkvæmdir sem gætu tekið vel á annað ár.

Um skeið hefur verið ljóst að staða félagsins er þröng og afar erfið. Félagið fékk fyrst heimild til greiðslustöðvunar í ágúst 2017. Rekstur verksmiðju félagsins var skömmu síðar, eða þann 1. september,  stöðvaður af Um­hverf­is­stofn­un. Heimild félagsins til greiðslu­stöðvun­ar var þann 4. september framlengd til 4. des­em­ber og þann dag til dagsins í dag.

Arion banki, sem er stærsti hluthafi United Silicon, hefur lagt félaginu til fjármagn á greiðslustöðvunartímabilinu og kostað rannsóknir og greiningar á stöðunni. Verkefni stjórnar á greiðslustöðvunartímabilinu var að reyna að ná nauðasamningum og fá nýja fjárfesta að félaginu.

Forsenda þess var að fá betri upplýsingar um stöðu félagsins. Þær úttektir sem unnar voru leiddu meðal annars í ljós mikla óreiðu og upp kom rökstuddur grunur um fjárdrátt stofnanda félagsins. Hann hefur verið kærður til embættis héraðssaksóknara. Einnig voru framkvæmdar ítarlega úttektir á búnaði verksmiðjunnar. Í skýrslu út­tekt­araðila kom fram að grunn­hönn­un ofns­ins sjálfs væri góð en aug­ljóst sé að ódýr og óvandaður jaðarbúnaður hafi orsakað tíðar bilanir og skapað erfiðleika við fram­leiðsluna. Mat sér­fræðing­anna sýn­di að um 25 millj­ón­ir evra þyrfti til að verk­smiðjan teldist full­kláruð.