Einar Sigurðsson, forstjóri Árvakurs hf., sagði á fundi með starfsmönnum fyrirtækisins í dag að unnið væri að  fjárhagslegri endurskipulagningu félagins.

Hann vísaði á bug orðrómi um að fyrirtækið hefði í dag óskað eftir greiðslustöðvun eða gjaldþrotaskiptum.

Frá þessu er greint á mbl.is .

Þar segir að Einar hafi kynnti fjárhagslega stöðu fyrirtækisins fyrir starfsfólki. Fram kom að lausafjárstaða félagsins væri erfið.

„Byrjað var í dag að greiða út laun, en fyrir liggur að ekki tekst að ljúka því fyrir tilsettan tíma nú um mánaðamótin," segir á mbl.is.

„Áfram verður unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu Árvakurs hf. um helgina, í samstarfi við viðskiptabanka fyrirtækisins, Glitni. Vonast er til að niðurstaða í þeirri vinnu liggi fyrir í helgarlok."