Unnið er hörðum höndum að því að búa til söngleik um líf Steve Jobs, stofnanda Apple, og er markmiðið að frumsýna hann í Los Angeles árið 2017. Frá þessu greinir Los Angeles Times .

„The (R)evolution of Steve Jobs“ mun fara yfir lífshlaup Jobs heitins og einnig samband hans við eiginkonuna Laurene Powell Jobs, sem og dóttur hans sem hann afneitaði stóran hluta æsku hennar.

Byrjað verður að vinna í söngleiknum á þessu ári, en hann verður einhvers konar ópera. Tónskáldið Mason Baters er á bakvið verkefnið, en hann er einnig plötusnúður. Hann samdi áður tónverk sem kallast „Omnivorous Future“ og blandar það saman sinfoníu og raftónlist.