Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur ákveðið að vinna skuli heildar stefnumótun fyrir fiskeldi á Íslandi. Einnig skulu rannsóknir, vöktun og eftirlit verða aukin. Þetta kemur fram á vef Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins.

Þríþættar aðgerir hafa nú þegar verið verið settar af stað og í fréttinni eru þær taldar upp sem:

  • Sett verður af stað vinna við stefnumótun fyrir allt fiskeldi á Íslandi. Í þeirri vinnu verður m.a. fjallað um umhverfisþætti, stjórnsýslu, gjaldtöku, útgáfu rekstrarleyfa, menntunarmál ásamt efnahags- og samfélagslegum þáttum.
  • Eftirlit verður aukið en Matvælastofnun hefur nýlega ráðið eftirlitsmann á Austfjörðum og á fljótlega verður auglýst eftir eftirlitsmanni á Vestfjörðum.
  • Rannsóknir verða auknar og munu tveir sérfræðingar á vegum Hafrannsóknastofnunar verða ráðnir til starfa á Ísafirði og munu þeir sinna innfjarðarrannsóknum m.a. burðarþolsmælingum og leggja mat á lífríki hvers fjarðar. Auk þess verður sviðsstjóri fiskeldismála hjá Hafrannsóknastofnun staðsettur á Ísafirði frá árinu 2018. Er þetta í takt við tillögur í skýrslu nefndar um átak í byggðamálum á Vestfjörðum sem lögð var fram í ríkisstjórn í lok síðasta mánaðar.

Haft er eftir Gunnari Braga að fiskeldi sé mjög spennandi atvinnugrein og vísar hann meðal annars til þess að 40% þess fisks sem neytt í dag er eldisfiskur.

„Það eru vissulega mikil sóknarfæri í eldi hér á landi – en við megum ekki fara fram úr okkur og verðum að gera hlutina bæði vel og rétt. Við höfum tekið upp ströngustu norsku staðla og erum að stórauka bæði rannsóknir og eftirlit. Jafnframt erum við að setja af stað vinnu við heildar stefnumótun í greininni og vona ég að hún muni liggja fyrir næsta vor,“ er einnig haft eftir Gunnari Braga.