„Vegna fréttaflutnings undanfarna daga vilja forráðamenn Prentmets leiðrétta þann misskilning að ekki sé hægt að endurprenta jólabækur hérlendis," þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Prentmet.

Árið 2003 keypti Prentmet Félagsbókbandið Bókfell og samhliða því kom mikið af reynslumiklu starfsfólki til starfa hjá Prentmet.

Prentmet er í dag eina prentsmiðja landsins sem getur fullunnið harðspjaldabækur og getur framleitt allar gerðir bóka. Höfum í gegnum tíðina unnið með fremstu bókahönnuðum landsins í hefðbundinni og óhefðbundinni bókaframleiðslu.