Unnur Björnsdóttir hefur verið ráðin tæknilegur framkvæmdastjóri Uniconta á Íslandi, sem býður upp á öflugt og einfalt bókhaldskerfi í skýinu að því er segir í fréttatilkynningu.

Unnur er með M.Sc og B.Sc gráður í véla- og iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Á árunum 2004 til 2010 sinnti hún starfi verkefnastjóra á tæknisviði og gæða- og öryggisstjóra hjá Jarðborunum hf. Þar sá hún meðal annars um innleiðingu á gæðastjórnunarkerfi og yfirumsjón með vottunarferli samkvæmt ISO 9001, ISO 14001 og OHSAS 18001 stöðlunum, ásamt rekstri kerfisins.

Árið 2010 réð hún sig til MainManager þar sem hún starfaði meðal annars sem verkefnastjóri, vörustjóri og COO. hjá MainManager ehf. Þar hafði hún meðal annars yfirumsjón með vöruþróun félagsins og gerð Roadmap og verkefnastjórnun í stærstu verkefnum félagsins í Noregi og Danmörku.

Ingvaldur Thor Einarsson, framkvæmdastjóri og stofnandi Uniconta á Íslandi segir það mikinn feng að fá Unni í raðir fyrirtækisins.

„Hún er dugnaðarforkur sem lætur verkin tala og passar vel inn í þann breiða hóp af hæfileikaríku fólki sem nú þegar starfar hjá fyrirtækinu,“ segir Ingvaldur en hann segir að mörg verkefni bíði hennar, enda fyrirtækið, sem var stofnað í fyrra, í stöðugri þróun.

„Unnur tekur að sér fjölbreyttar áskoranir innan Uniconta á Íslandi og er mikilvægur hlekkur í áframhaldandi þróun og vexti hjá Uniconta. Við bjóðum Unni innilega velkomna í hópinn og hlökkum til að vinna frekar með þessum dýrmæta starfskrafti.“