Þingmaðurinn Unnur Brá Konráðsdóttir var í dag kjörinn formaður Vestnorræna ráðsins.  Ársfundur ráðsins var haldinn í Narsarsuaq á Grænlandi og lauk í dag. Unnur Brá er formann Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins. Hún tekur við embættinu af Lars-Emil Johansen, forseta grænlenska Landsþingsins, sem heitir Inatsisartut eftir að Grænland hlaut sjálfstjórn.

Haft er eftir Unni Brá í tilkynningu að í formennskutíð sinni muni hún leggja höfuðáherslu á að þrýsta á ríkisstjórnir Íslands, Færeyja og Grænlands að styrkja Norðurskautssamstarf landanna. Hún sagði jafnframt að hún myndi vinna að því að tryggja áheyrnaraðild Vestnorræna ráðsins að Norðurskautsráðinu, en samþykkt var á ársfundinum að sækja um þess slags aðild. Þá sagðist hún ætla að leggja áherslu á að löndin efldu samstarf sitt í heilbrigðismálum og þá sérstaklega það sem hefur í för með sér efnahagslegan ávinning fyrir löndin.

Styður veiðar á hvölum og selum

Þá gerði hún að umtalsefni aðgerðir ESB í tengslum við makrílveiðar Íslands og Færeyja og síldveiðar Færeyja, sem og stuðning sjávarútvegsráðherra Noregs við þær. Hún sagðist mundu taka ályktun ársfundarins um málið upp með sendinefnd Evrópuþingsins, en í ályktuninni er ESB gagnrýnt harðlega fyrir hótanir sínar í garð Færeyja og Íslands og bent á að slíkt eigi ekki við í samskiptum siðaðra þjóða. Þá benti hún á að Vestur-Norðurlönd hafi fullan rétt á að stunda sjálfbærar veiðar á hvölum og selum.

Formaður ráðsins er kjörinn til eins árs. Vestnorræna ráðið er samstarfsvettvangur Alþingis, Landsþings Grænlands og Lögþings Færeyja. Löndin þrjú skipa sex fulltrúa hvert í Vestnorræna ráðið.