Unnur Brá Konráðsdóttir, sveitarstjóri í Rangárþingi eystra og varaþingmaður, ætlar að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og óskar stuðnings í 2. sæti listans, að því er segir í fréttatilkynningu. Unnur Brá er 34 ára lögfræðingur frá HÍ og hefur verið sveitarstjóri frá því í sveitarstjórnarkosningunum 2006. Hún hefur verið 1. varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu en hún lenti í 5. sæti í síðasta prófkjöri.

Í tilkynningunni segir: „Unnur Brá er talsmaður breytinga í stjórnsýslunni, vill auka virðingu fyrir lýðræðinu og telur að grunngildi Sjálfstæðisstefnunnar hafi sjaldan eða aldrei átt meira erindi við íslenska þjóð en einmitt nú. Unnur Brá telur þörf á hugrökku fólki í framvarðasveit Sjálfstæðisflokksins til að fylgja eftir nauðsynlegum breytingum og til að takast á við það risavaxna verkefni að skera umtalsvert niður í opinberum rekstri. Unnur Brá telur að samfélag þar sem allar stéttir vinni saman að því markmiði að bæta lífsgæðin sé það sem þarf. Framtak einstaklinganna og frelsi þeirra til athafna sé lykillinn að því að tryggja  komandi kynslóðum bestu mögulegu lífsgæði á Íslandi til framtíðar. Í þeirri hugmyndafræðilegu deiglu sem nú er uppi í samfélaginu verða sjónarmið um frjálst og opið Ísland að verða ofan á.

Unnur Brá telur að við endurreisn efnahagslífsins á Íslandi sé mikilvægt að nýta auðlindir landsins skynsamlega, tryggja aðgengi að menntun og skapa atvinnulífinu þannig umhverfi að nýsköpun sem skilar landinu gjaldeyristekjum blómstri. Unnur Brá telur ljóst að endurskoða þurfi regluverkið um fjármálageirann og styrkja eftirlitstofnanir á því sviði.“

Unnur Brá er í sambúð með Kjartani Þorkelssyni sýslumanni á Hvolsvelli en þau eiga tvö börn, Konráð Óskar 4 ára og Bríeti Járngerði 9 mánaða. Auk þess á Kjartan tvær dætur frá fyrra hjónabandi þær Matthildi og Ingu Hrund.