Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, átti í dag fund með Paul Ryan, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, ásamt þingforsetum Norðurlanda og Eystrasaltsríkja. Í samtali þeirra lagði Unnur Brá áherslu á mikilvægi góðs samstarfs Bandaríkjanna við bandamenn í Evrópu, þar með talið þingmannasamskipti, að því er segir í fréttatilkynningu.

Lýsti hún áhyggjum af minnkandi trausti almennings í Evrópu og víðar um heim á Bandaríkjunum, eins og nýleg alþjóðleg könnun sýnir. Sagði hún mikilvægt að Bandaríkin gegndu áfram forystuhlutverki sínu af ábyrgð og festu.

Þá ræddu þingforsetarnir málefni norðurslóða og samvinnu á þeim vettvangi í ljósi aukins áhuga á svæðinu, en í síðustu viku hélt Hringborð norðurslóða undir forystu Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands, fjölmenna Arctic Circle Forum ráðstefnu í Washington.

Þingforsetar þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja eru í vinnuheimsókn í Bandaríkjunum, 27.–28. júní 2017.