Unnur Ingimundardóttir hefur verið ráðin viðskiptastjóri hjá Lykli, en hún hefur verið þjónustufulltrúi í þjónustuveri Lýsingar frá árinu 2007. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu.

Í tilkynningunni segir að Lykill hafi ákveðið að fjölga starfsfólki sínu „í kjölfar frábærrar viðtöku á framboði og þjónustu í tengslum við fjármögnun fyrir einstaklinga á bifreiðum og öðrum skráningarskyldum ökutækjum.“

Aðrir viðskiptastjórar Lykils eru Erla S. Þorsteinsdóttir og Sindri Sigurðsson. Forstöðumaður Lykils er Herbert S. Arnarsson.