Icelandair hefur nýlega hafið að leita tilboða farþega á almennu farrými í laus sæti á Economy Comfort og Saga Class. Vefurinn Túristi greinir frá þessu.

Uppboð á sætunum hefst tíu dögum fyrir brottför og geta áhugasamir þá lagt fram tilboð í sætin. Þátttakendur sjá hversu líklegt er að tilboði þeirra verði tekið og liggur niðurstaða fyrir tveimur sólarhringum fyrir brottför.

„Verðunum er stýrt af þeim sem bjóða og þannig gefum við ekki út neitt lágmarksverð. Þetta er jafnframt háð framboði sæta og er eingöngu í boði ef við náum ekki að selja þau með venjulegum leiðum sem getur verið mjög mismunandi eftir flugleiðum og tíma dags sem flogið er. Viðtökurnar eru í samræmi við væntingar,“ segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, í samtali við Túrista.