Mikill uppgangur er í hvalaskoðun sé tekið mið af uppgjöri fyrirtækja í geiranum.

Hagnaður Special Tours, sem býður upp á hvala- og náttúruskoðunarferðir frá Reykjavíkurhöfn, sextugfaldaðist milli áranna 2013 og 2014. Hagnaðurinn nam 68 milljónum króna í fyrra. EBITDA fyrirtækisins áttfaldaðist og nam 106 milljónum í fyrra.

Hagnaður Norðursiglingar, sem siglir frá Húsavík, rúmlega tvöfaldaðist í fyrra og nam 54 milljónum. Rekstrarhagnaður Norðursiglingar jókst úr 47 milljónum í 86 milljónir milli ára.