Í áramótablaði Viðskiptablaðsins er spjallað við nokkra forystumenn í mismunandi greinum atvinnulífsins þar sem þeir eru spurðir hvernig þeim fannst árið sem er að líða og hvaða væntingar þeir bera til ársins 2015. Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova, segir árið hafa verið gott heilt yfir.
Hvernig var árið 2014 heilt yfir?
Árið 2014 var heilt yfir bara nokkuð gott. Hjá Nova var mikil áhersla lögð á áframhaldandi, öfluga uppbyggingu 3G og 4G netkerfisins til að anna síaukinni eftirspurn eftir góðu aðgengi að háhraða netþjónustu beint í farsímann. Við fjárfestum því töluvert á árinu samhliða áframhaldandi uppbyggingu félagsins og fjölgun viðskiptavina. Við erum stolt af því að hafa hlotið titilinn Markaðsfyrirtæki ársins 2014 hjá ÍMARK og hafa náð því að eiga ánægðustu viðskiptavinina í farsímaþjónustu á Íslandi fimmta árið í röð. Árið 2014 hefur því verið gott og skemmtilegt.
Hvað fannst þér ganga vel á árinu?
Uppbygging ferðaþjónustunnar hefur gengið vel.
Hverjar eru væntingar þínar á nýju ári?
Hófleg bjartsýni.
Hver eru mikilvægustu verkefni ríkisstjórnarinnar á næsta ári?
Skýrari framtíðarsýn, skilvirkari stjórnsýsla, afnám hafta og betra samstarf við atvinnulífið til að efla samkeppnishæfni Íslands.
Spjallað er við fleiri forystumenn í íslensku atvinnulífi í áramótablaði Viðskiptablaðsins. Áskrifendur geta nálgast pdf-útgáfu af blaðinu með því að smella á hlekkinn Tölublöð .