Gengi hlutabréfa netrisans Google féll um 6% þegar verst lét í gær eftir að uppgjör fyrirtækisins á fyrsta ársfjórðungi olli vonbrigðum. Uppgjörið var undir væntingum markaðsaðila, samkvæmt erlendum fjármálasérfræðingum. Hagnaður fyrirtækisins nam sem svarar til 6,27 dala á hlut samanborið við 6 dali á hlut á sama fjórðungi í fyrra. Afkomuspár hljóðuðu upp á 6,4 dali á hlut. Tekjur námu 15,4 milljörðum dala borið saman við 12,95 milljarða fyrir ári.
Þrátt fyrir gengisfall hlutabréfa Google í gær ættu eigendur hlutabréfa félagsins að vera nokkuð sáttir enda hefur gengið hækkað um rúm 40% á siðastliðnum 12 mánuðum.
Bandaríska fréttastofan CNN segir uppgjörið hafa valdið vonbrigðum, ekki síst fyrir þær sakir að auglýsingasala standi á ákveðnum tímamótum. Auglýsingahluti Google hefur frá upphafi verið ein af helstu stoðunum í viðskiptamódeli Google. CNN segir helsta vanda Google nú um stundir felast í því að fá forsvarsmenn fyrirtækja til að greiða jafn mikið fyrir auglýsingar sem birtast á farsímum og spjaldtölvum og á borðtölvum. Þetta er mikilvægt, að sögn CNN, enda netnotkun að færast í miklum mæli yfir á önnur tæki en borð- og fartölvur.