Straumur hagnaðist um 127 m.kr. á fjórða ársfjórðungi en félagið birti uppgjör sitt rétt fyrir lokun markaða í dag. "Afkoma Straums er verulega undir okkar væntingum en við spáðum að hagnaður félagsins myndi nema 450 m.kr. miðað við að eignarhlutur bankans í Íslandsbanka yrði færður á kaupverði," segir í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans.
Þar er einnig bent á að hreinar vaxtatekjur lækkuðu um 43 m.kr. á milli fjórðunga en við gerðum ráð fyrir 60 m.kr. aukningu. Lækkun í hreinum vaxtatekjum skýrist m.a. af því að Straumur jók hlutabréfastöðu sína um 9 ma.kr. á ársfjórðungnum en aukningin var fjármögnuð með lántöku. Þá nam gengishagnaður 28 m.kr. á fjórðungnum sem er um 200 m.kr. minna en við höfðum áætlað.