Uppgjör Teymis hf., móðurfélags Vodafone, SKÝRR, EJS, Kögunar og fleiri vegna fyrsta ársfjórðungs 2007 verður kynnt á morgun í húsakynnum félagsins í Skútuvogi 2. Uppgjörið sjálft mun liggja fyrir í Kauphöllinni upp úr hádegi.

Árni Pétur Jónsson, forstjóri, og Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna afkomu félagsins og svara spurningum.