Í næstu viku byrjar uppgjörstímabilið í Kauphöllinni af fullum þunga. Næstkomandi fimmtudag munu Kaupþing, Exista og Straumur-Burðarás birta uppgjör fyrsta fjórðungs 2007.

Í Morgunkorni Glitnis er bent á að kosningar til Alþingis fara kunni að hafa áhrif á hlutabréfamarkaðinn. "Þá ríkir eftirvænting á markaðnum vegna umræðu um hugsanlegan ytri vöxt nokkurra félaga. Tekið saman stefnir því í að næstu vikur verði spennandi á hlutabréfamarkaði," segir í Morgunkorninu.

Þar er bent á að það sem af er ári hefur undirliggjandi velta á innlendum hlutabréfamarkaði verið sambærileg við veltuna 2006. Veltan var lítið minni í janúar og mars á þessu ári heldur en á síðasta ári en mun meiri í febrúar. Ástæðan fyrir veltuaukningu í febrúar má rekja til tilfærslu eignarhluta í ár og að markaðurinn snéri við í fremur lítilli veltu eftir hraða hækkun um miðjan febrúar á síðasta ári. Það sem af er liðið apríl er nokkur veltuaukning í pípunum frá fyrra ári þrátt fyrir að leiðrétt sé fyrir stórum viðskiptum með eignarhluti í Glitni. Í heildina litið virðist því undirliggjandi velta á markaðnum vaxa nokkuð frá fyrra ári segir í Morgunkorni Glitnis.