Fyrstu uppgjör Kauphallarinnar í þessari lotu birtast í þessari viku. Hf. Eimskipafélag Íslands og Nýherji birta fyrst en Hf. Eimskipafélagið er með skakkt reikningsár (1.nóv. - 31.okt.) eins og það er orðað í Vegvísi Landsbankans.

Um viku síðar munu bankarnir birta sín uppgjör. Uppgjörin birtast nokkuð jafnt og þétt fram til 13.mars þegar næstsíðasta uppgjörið verður birt. Mosaic Fashions er síðasta félagið sem birtir en félagið er með skakkt reikningsár (1.feb. - 31.jan.) og birtir ársuppgjör sitt 25.apríl.