Landsbankinn mun fella niður uppgreiðslugjald allra íbúðalána um óákveðinn tíma.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbankanum en þar segir að bankinn vilji með þessum aðgerðum mæta óskum viðskiptavina sem vilja greiða niður lán sín hraðar.

„Niðurfærsla uppgreiðslugjalds mun einnig létta undir í fasteignaviðskiptum þar sem aðilar þurfa að greiða niður lán að hluta eða fullu,“ segir í tilkynningunni.