Ísland verður að kveða á um viðurlög ef atvinnurekandi vanrækir þá skyldu að upplýsa starfsmenn um helstu ráðningarkjör, samkvæmt niðurstöðu rökstudds álits Eftirlitsstofnunar EFTA, ESA, í dag.

Í álitinu segir að samkvæmt reglum EES ber atvinnurekendum að láta starfsmönnum í té skriflegar upplýsingar um helstu ráðningarkjör, svo sem um laun, vinnutíma og orlofréttindi. Ísland hafi innleitt þessi ákvæði. Á sama tíma gilda engin viðurlög við því ef atvinnurekandi lætur hjá líða að veita þessar upplýsingar.

Málið gæti farið fyrir EFTA-dómstólinn

EFTA-dómstóllinn hefur bent á að ef EES-reglur eru innleiddar sem leggja á tilteknar skyldur án þess að það varði neinni ábyrgð að brjóta gegn skyldunum sé hætt við að svo mjög væri dregið úr vægi ákvæðanna að þau yrðu í reynd ekki annað en viljayfirlýsingar.

Ísland hefur viðurkennt nauðsyn þess að þessum reglum fylgi ákvæði um viðurlög, en hefur enn sem komið er ekki tekið nein afgerandi skref í þá átt.

Þá kemur fram í áliti ESA að það telst lokaaðvörun til Íslands, sem fær tvo mánuði til að gera viðeigandi ráðstafanir til að bregðast við álitinu. Gangi það ekki eftir getur ESA ákveðið að fara með málið fyrir EFTA-dómstólinn.