Tveimur starfsmönnum Kaupþings hefur verið sagt upp til viðbótar, en það eru þeir Jónas Sigurgeirsson, forstöðumaður upplýsingasviðs bankans og Benedikt Sigurðsson, upplýsingafulltrúi.

Með brotthvarfi Jónasar eru allir framkvæmdastjórar gömlu Kaupþings samstæðunnar horfnir á braut.

Þetta kemur fram á mbl.is

Jónas segist, í samtali við Mbl.is, ekki vita hver muni taka við upplýsingasviði Kaupþings, en að hann geri ráð fyrir því að starfið verði auglýst til umsóknar.

Þrír framkvæmdastjórar Nýja Kaupþings létu af störfum í gær. Það voru Bjarki Diego, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs en hann var einnig í skilanefnd bankans, Þórarinn Sveinsson, framkvæmdastjóri eignastýringasviðs, og Guðný Arna Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrar.