Markús Sigurbjörnsson, hæstaréttardómari og forseti Hæstaréttar, telur sig hafa sent inn tilkynningu um hlutabréfaviðskipti sín fyrir hrun. Samkvæmt kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins, virðast þær upplýsingar þó ekki hafa borist nefnd um dómarastörf. Talið er að nefndin hafi haft lélegt skipulag á gögnunum.