Ný heimasíða veitir erlendum starfsmönnum og þjónustufyrirtækjum upplýsingar um réttindi þeirra og skyldur hér á landi. Þorsteinn Víglundsson félags- og jafnréttismálaráðherra opnaði síðuna að því er kemur fram í frétt Velferðarráðuneytisins.

„Vinnumálastofnun stóð fyrir gerð vefsíðunnar í samvinnu við Ríkisskattstjóra, Vinnueftirlitið, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins," segir í fréttinni.

„Markmiðið er að bæta upplýsingagjöf til erlendra aðila sem starfa tímabundið hér á landi og tryggja að þeir starfi í samræmi við lög og reglur.

Þörf fyrir upplýsingar um þessu mál hefur aukist á undanförnum misserum þar sem erlendum fyrirtækjum sem starfa hér á landi og starfsmönnum á þeirra vegum hefur fjölgað umtalsvert.

Starfsmannaleigum og erlendum þjónustufyrirtækjum er skylt samkvæmt lögum  að tilkynna starfsemi sína til Vinnumálastofnunar ásamt því að veita upplýsingar um starfsmenn sína sem starfa hér á landi og skila inn afriti af ráðningarsamningum.

Alls voru 54 erlend þjónustufyrirtæki sem skráðu sig hjá Vinnumálastofnun árið 2016 með samtals 996 starfsmenn. Starfsmenn á vegum innlendra og erlendra starfsmannaleiga voru þá samtals 1527.

Á vefsíðunni posting.is eru meðal annars birtar upplýsingar um kaup og kjör, vinnuvernd, skattamál, mat á starfsréttindum, skráningu til Þjóðskrár og upplýsingar um skráningaskyldu erlendra fyrirtækja til Vinnumálastofnunar."