Hátt í tug blaðamanna DV hefur verið sagt upp störfum. Að auki hefur umbrotsstarfsmanni, prófarkalesara, öllum starfsmönnum áskriftardeildar og nokkrum í auglýsingadeild verið sagt upp, samkvæmt heimildum mbl.is .

Í síðustu viku heimilaði Samkeppniseftirlitið kaup Torgs, sem er útgáfufélag Fréttablaðsins og Hringbrautar, á Frjálsri fjölmiðlun, útgáfufélagi DV. Umræddar uppsagnir eru liður í samruna fjölmiðlanna. Þá herma heimildir mbl.is að einhverjum starfsmönnum bjóðist að koma til starfa hjá Torgi. Um sé þó að ræða fámennan hóp.

Ritstjóri DV, Lilja Katrín Gunnarsdóttir, mun hafa afþakkað boð um starf hjá Torgi og í samtali við mbl.is kveðst hún ganga sátt frá borði.

„Mér bauðst að halda áfram sem ritstjóri DV eftir samrun­ann við Torg en afþakkaði það boð. Ég er mjög stolt af því sem ég og þessi litla en samheldna ritstjórn DV, sem og eiginmaður minn, Guðmundur Ragnar Einarsson, sem gegndi stöðu markaðs- og þróunarstjóra DV, hefur áorkað síðustu mánuði og ár og geng afar sátt frá borði,“ hefur mbl.is eftir Lilju Katrínu, en samkvæmt heimildum miðilsins verður nýr ritstjóri DV kynntur síðar í dag.