Starfsfólki hjá Siglunesi hf og Útgerðarfélaginu Nesi ehf. hefur verið sagt upp störfum. Alls störfuðu 35 manns hjá félögunum. Greint er frá uppsögnunum á Siglo.is þar sem birt er tilkynning um ástæður uppsagnarinnar. Þar segir:

„Vegna erfiðra rekstrarskilyrða í sjávarútvegi þá er óhjákvæmilegt annað en að segja upp öllu starfsfólki hjá fyrirtækjum okkar frá og með 30. Nóvember 2012 samtals 35 manns og fara í endurskipulagningu á fyrirtækjunum.

Ástæður uppsagnana eru auknar álögur á fyrirtæki í sjávarútvegi sem er auðlindagjald og sérstakt veiðigjald, einnig óskiljanlegur niðurskurður í ýsukvóta, lækkandi afurðarverð á mörkuðum okkar og nýgerðir kjarasamningar landsambands smábáta og sjómannasambandsins.

Það er von okkar að það verði hægt að endurráða sem flesta að þessum aðgerðum loknum.“ Undir tilkynninguna undirrita Gunnlaugur Oddsson og Freyr Steinar Gunnlaugsson.