Arion Banki sagði upp um tuttugu manns nú í morgun. MBL greinir frá.

Ástæður uppsagnanna að sögn Haralds Guðna Eiðssonar, upplýsingafulltrúa bankans, eru skipulagsbreytingar og hagræðingar vegna sameiningar á þjónustu við fyrirtæki.

Langsamlega stærsti hluti uppsagnanna var á höfuðborgarsvæðinu.