Í dag var tilkynnt um uppsagnir hjá starfsfólki Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins að því er Fréttablaðið greinir frá.

Eru uppsagnirnar sagðar dreifast á alla miðla útgáfunnar, bæði vefmiðla og prentmiðla. Tilkynnt var um uppsagnirnar á fundi með starfsfólki í dag.