Uppsagnir eru óhjákvæmilegar vegna fyrirhugaðra breytinga á starfsemi fjölmiðlafyrirtækisins 365, að því er fram kemur á vef RÚV . Breytingarnar eru því bæði til eflingar og hagræðingar hjá fyrirtækinu.

Eins og VB.is fjallaði um í morgun standa yfir viðræður um sameiningu 365 miðla og fjarskiptafyrirtækisins Tal. Starfsmönnum 365 voru kynntar breytingarnar á fundi í morgun. Samkvæmt heimildum RÚV kom fram á fundinum að til standi að efla sjálfstæði fréttastofu 365 auk þess sem Petrea Ingileif Guðmundsdóttir, forstjóri Tal, komi inn í framkvæmdastjórn 365.