Orkuveitan sögð hafa verið í rétti við að segja upp þeim Áslaugu Thelmu Einarsdóttur og Bjarna Má Júlíussyni og að vinnustaðamenningin sé góð. Vinnustaðarmenning hjá Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfyrirtækjum er betri en gengur og gerist á íslenskum vinnumarkaði.

Þetta er niðurstaða úttektar á starfsmannamálum hjá OR samstæðunni sem framkvæmd var af innri endurskoðun Reykjavíkurborgar. Í úttektinni segir jafnframt að uppsagnir þeirra Áslaugar Thelmu Einarsdóttur og Bjarna Más Júlíussonar hjá Orku náttúrunnar (ON) séu taldar réttmætar.

Byggir það meðal annars á áliti annarra starfsmanna samkvæmt könnun félagsvísindastofnunar. Þó eru ábendingar í úttektinni um að standa hefði mátt betur að framkvæmd uppsagnanna, en eins og Viðskiptablaðið sagði frá á sínum tíma var Bjarna Má sagt upp vegna ásakana um óviðeigandi hegðun.

Segjast hafa útrýmt kynbundnum launamun

Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir jafnframt að niðurstaðan sé í takti við mælanlegan árangur fyrirtækisins í jafnréttismálum. „Tekist hefur að útrýma kynbundnum launamun innan OR og fyrirtækið nýtur jafnlaunavottunar Jafnréttisstofu. Fyrirtækið hefur á síðustu árum hlotið jafnréttisviðurkenningar frá Jafnréttisráði og Samtökum atvinnulífsins.“ segir m.a. í tilkynningunni.

„Nær allir starfsmenn tóku þátt í #metoo vinnustofum í vor vegna þess að fyrirtækið hefur lagt áherslu á að skapa öruggt og heilbrigt vinnuumhverfi. Stjórnendur fyrirtækisins, sem eru að meirihluta konur, hafa fengið fræðslu um #metoo og lögin.
Ásakanir um að uppsögn millistjórnanda hjá ON hefði verið óréttmæt og til marks um óheilbrigða vinnustaðarmenningu voru því teknar mjög alvarlega.“

Áreitni á vinnustað á ekki að líðast

Brynhildur Davíðsdóttir formaður stjórnar OR segir skýrsluna sýna að sú mynd sem hafi verið dregin upp af vinnustaðnum hafi ekki verið sanngjörn. „Það er mikilvægt að nú liggur fyrir óháð og ítarleg skoðun á þeim atburðum sem urðu að brennidepli opinberrar umræðu nú í haust og einnig ábendingar um þá lærdóma sem við þurfum að draga af þeim,“ segir Brynhildur.

„Það er mikilvægt að nú hafa staðreyndir málsins verið leiddar fram. Það var full ástæða til að fara vel yfir þessi mál. Áreitni á vinnustað á ekki að líðast og ásakanir um slíkt á að rannsaka.“

Helstu niðurstöður skýrslunnar um vinnustaðarmenningu byggja á könnun Félagsvísindastofnunar HÍ sem gerð var 6. til 9. október:

  • Almennt er starfsfólk OR ánægt í starfi. Starfsánægja er meiri meðal kvenna hjá OR heldur en karla. Starfsánægja er umtalsvert meiri en mælist almennt á íslenskum vinnumarkaði.
  • 0,7% starfsmanna hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni í starfi sínu hjá OR á síðustu 12 mánuðum. Það er talsvert minna en gengur og gerist á vinnumarkaði.
  • 3% starfsmanna hafa orðið fyrir einelti í starfi sínu hjá OR síðustu 12 mánuði. Það er einnig minna en gengur og gerist á íslenskum vinnustöðum.
  • Starfsmenn OR eru ánægðir með yfirmenn sína og telja þá koma vel fram við starfsfólk.
  • Þegar spurt er um hegðun sem fellur undir skilgreiningu kynferðislegrar áreitni án þess að nefna kynferðislega áreitni hækkar hlutfall núverandi og fyrrverandi starfsmanna sem segjast hafa orðið fyrir slíkum atvikum.
  • Fyrrverandi starfsfólk, sem ýmist hafði verið sagt upp eða sagt upp sjálft, var almennt neikvæðara í garð fyrirtækisins.

Úttektarteymið ræddi við fjölda fólks innan og utan OR, rýndi gögn og dró af þeim ályktanir. Á meðal niðurstaðna er:

  • Uppsagnir tveggja stjórnenda hjá Orku náttúrunnar, þeirra Áslaugar Thelmu Einarsdóttur forstöðumanns hjá ON og Bjarna Más Júlíussonar framkvæmdastjóra ON, í september síðastliðnum voru réttmætar.
  • Áslaug Thelma Einarsdóttur fékk skýringar á uppsögn sinni en frekari skýringum sem boðnar voru fram á fundi var hafnað. Ábending er í skýrslunni um að hún hefði átt að fá skriflegar skýringar þegar við uppsögn.
  • Ábendingar koma fram um að skerpa þurfi á verklagi og ferlum varðandi uppsagnir.
  • Lagt er til að orðsporsáhætta vegna umræðu á borð við þá sem skapaðist verði metin sérstaklega og aðgerðaáætlanir fyrirtækisins uppfærðar.
  • Lagt er til að fyrirkomulag við skipan stjórna dótturfélaga verði endurskoðað.

Helga Jónsdóttir, forstjóri OR segir niðurstöðuna sýna að hægt sé að gera betur. „Síðar í vikunni munum við hittast öll sem störfum hjá Orkuveitusamstæðunni og fara yfir úttektina í sameiningu. Hún er í fullu samræmi við vinnustaðagreiningar, sem hér hafa verið gerðar árum saman til að leggja grunn að stöðugum úrbótum,“ segir Helga.

„Staðfest er að það er mjög margt gott á vinnustaðnum en líka leitt fram ýmislegt sem hægt er að bæta, bæði í verklagi og menningu. Sameiginleg úrvinnsla allra starfsmanna úr óháðu úttektinni verður mikilvægt veganesti inn í tillögugerð til stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur.“

Betri vinnustaðamenning en gengur og gerist

Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar segir gott að niðurstöðurnar liggi nú fyrir, en stjórn félagsins bað um úttekt innri endurskoðunar 19. september síðastliðinn. „Þetta hefur verið krefjandi tími hjá starfsfólki Orku náttúrunnar en niðurstöðurnar sýna að vinnustaðarmenningin er betri en gengur og gerist á íslenskum vinnumarkaði,“ segir Berglind Rán.

„Samskipti og samstarf hafa almennt einkennst af virðingu og heiðarleika eins og starfsmannakannanir hjá okkur hafa sýnt en við munum hlusta á ábendingar og vinna saman að því að gera vinnustaðinn enn betri.“