Það er uppselt á Iceland Airwaves. Síðustu miðar seldust nú í hádeginu, en alls voru 5500 miðar seldir. Aftur á móti verða í heild 7500 manns á hátíðinni að öllum meðtöldum.

Venja er að það seljist upp á hátíðina, en eftirspurn eftir miðum eykst samt með hverju árinu sem líður. „Við erum alltaf að slá met í því hvað við erum fljót að selja upp,“ segir Kamilla Ingibergsdóttir, fjölmiðlafulltrúi hátíðarinnar, í samtali við VB.

Fjöldi vinsælla hljómsveita tekur þátt í hátíðinni að þessu sinni en Kraftwerk er án efa þeirra þekktust.