Uppselt er á fyrri umspilsleik Íslands og Króatíu á Laugardalsvelli sem fram fer 15. nóvember næstkomandi. Miðasalan hófst á miði.is í nótt og seldust allir miðar sem þar voru í boði. Hver og einn gat aðeins keypt mest sex miða.

Fram kemur á söluvefnum midi.is að 500 króna forsöluafsláttur var af fullu miðaverði fram að leikdag. Miðaverðið var á bilinu 2.000 til 4.000 krónur fyrir eldri en 16 ára.