Rúmlega 800 manns hafa tilkynnt um þátttöku sína á haustráðstefnu Advania sem fram fer á Hilton Nordica á föstudaginn. Uppselt er á ráðstefnuna í fyrsta sinn en þetta er í nítjánda sinn sem ráðstefnan er haldin.  Á Haustráðstefnu Advania í ár verður boðið upp á fjórar málstofur með 32 fyrirlestrum frá innlendum og erlendum sérfræðingum, notendum og stjórnendum í upplýsingatæknimálum fyrirtækja.