Mikill áhugi er á sýningunni Verk og vit 2020 sem haldin verður í fimmta sinn í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal 12.-15. mars næstkomandi. Uppselt er á sýningarsvæði Verk og vit nú þegar tæpur mánuður er í opnun. Yfir 100 fyrirtæki og stofnanir munu kynna vörur sínar og þjónustu á sýningunni.

Það er mikill metnaður hjá sýnendum sem leggja mikla vinnu við undirbúning og hönnun sinna sýningarsvæða sem skilar sér án efa í glæsilegri sýningu, segir Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla sem er framkvæmdaaðili sýningarinnar.

Áslaug segir að fagsýning eins og Verk og vit sé mikilvægur vettvangur fyrir byggingariðnaðinn. Sýningin felur í sér tækifæri fyrir fagaðila, innlenda jafnt sem erlenda, að kynna vörur sínar og þjónustu og til að styrkja tengslanetið. Nú er góður tími til að sækja fram og þétta raðirnar og fara yfir verkefnin sem framundan eru.

Meðal sýnenda á Verk og vit eru byggingarverktakar, verkfræðistofur, menntastofnanir, fjármála- og ráðgjafafyrirtæki, tækjaleigur, hugbúnaðarfyrirtæki og sveitarfélög svo eitthvað sé nefnt. Framkvæmdaaðili sýningarinnar er AP almannatengsl en samstarfsaðilar eru atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, BYKO og Landsbankinn.