Miðar í forsölu Vodafone og WOW á tónleika Justins Timberlake sem fram fara í ágúst eru orðnir uppseldir. Samkvæmt heimildum VB.is hafa því 8000 miðar verið seldir. Opnað verður fyrir almenna sölu á morgun.

Opnað var fyrir forsölu á tónleika Timberlake í morgun. Tónleikarnir verða haldnir í Kórnum í Kópavogi þann 24. ágúst. Fjöldi gesta á sérstaka vefsíðu sem vísaði viðskiptavinum Vodafone inn á miðasölukerfi Miða.is jókst eftir því sem leið á morguninn. Mestur var fjöldinn og rétt fyrir klukkan tíu.